|
| Ég heiti Andri Steinn og er 5 ára prins!! |
|
Um mig:
Ég kom í heiminn 7.okt 2005 kl. 09:15 eftir mikil erfiði var ég tekin með keisara. Ég er með blá augu og kolsvart hár. Ég var 16 merkur, 3930 gr og 52 cm rosa myndalegur gaur.
|
|
|
|
Annað:
Ég er með svo litlar hendur,ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni. Fæturnir á mér eru svo stuttir,farðu hægar svo ég geti fylgt þér. Ekki slá á hendurnar mínar þegar ég snerti eitthvað fallegt,ég skil það ekki. Horfðu á mig þegar ég er að tala við þig,þá veit ég að þú ert að hlusta. Ég hef viðkvæmar tilfinningar,ekki vera alltaf að skamma mig. Leyfðu mér að gera eitthvað vitlaust án þess að þér finnist ég vitlaus. Ekki búast við því að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég bý um sé fullkomið. Elskaðu mig bara fyrir að reyna.
Elsku mamma Ég elska þig svo mikið og mig langar svo til að segja þér af hverju Það eru margar ástæður fyrir því að ég elska þig Þú ert besta mamman í öllum heiminum Ég á þér svo margt að þakka Ég er svo stoltur yfir því að vera sonur þinn Þú hefur alltaf verið til staðar fyrir mig þegar ég hef þurft á þér að halda Þú lýsir upp líf mitt Frá þér streymir kærleikur og hlýja Þú ert skilningsrík og viskubrunnur þinn er óþrjótandi Það er svo margt sem þú hefur kennt mér um lífið og tilveruna Ég veit að ég væri ekki sú manneskja sem ég er í dag ef ég hefði ekki átt þig að Þú veist alltaf á hverju ég þarf að halda og hvenær ég þarf uppörvun Þú þekkir mig svo vel Ég veit að til þín get ég alltaf leitað Mig langaði bara svo mikið til að segja þér hve mikils ég met þig Ég hef allt of oft tekið þig sem sjálfsögðum hlut En það sem máli skiptir er að þú vitir að ég elska þig ÞÚ ERT BEST
Stjörnumerkið mitt 23.sept - 22. okt Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: ?Hvað finnst þér?? Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína.
Helstu einkenni voga: Jafnvægisþörf, ljúf, mjúk og mild, þægileg í umgengni, fáguð, kurteis, yfirborðskennd, löt, slæmt minni, erfitt með einbeitingu, listfeng, ósjálfstæð, stöðugt að vega og meta og bera saman, tvístígandi, yfirveguð, sáttfús, félagslynd, rómantísk, hefur sterka réttlætiskennd, friðsöm og á til tvöfeldni.
Kristófer Magnús
|
| Þú ert gestur nr. 37691 |